Fanney Pálsdóttir ráðgjafi VIRK á Vestfjörðum
Fanney Pálsdóttir ráðgjafi VIRK á Vestfjörðum

Á Vestfjörðum er Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari ráðgjafi fyrir Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Félag opinberra starfsmanna, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungavíkur og Félag jarniðnaðarmanna á Ísafirði. Ráðgjafinn er staðsettur í skrifstofu verkalýðsfélaganna Pólgötu 2 á Ísafirði. Stöðugildi ráðgafans er 50% og er Fanney með viðveru alla virka daga frá kl. 08:00 - 12:00. Sími ráðgjafa er 4565190 og netfang vik@verkvest.is .  

Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs
er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Stefna Starfsendurhæfingarsjóðs er að:

  • skipuleggja ráðgjöf og þjónustu fyrir starfsmenn sem veikjast til lengri tíma eða slasast þannig að vinnugeta skerðist
  • stuðla að snemmbæru inngripi með starfsendurhæfingarúrræðum í samstarfi við sjúkrasjóði og atvinnurekendur
  • fjármagna ráðgjöf og fjölbreytt endurhæfingarúrræði sem miða að aukinni virkni starfsmanna sem búa við skerta vinnugetu til viðbótar því sem þegar er veitt af hinni almennu heilbrigðisþjónustu í landinu
  • stuðla að fjölbreytni og auknu framboði úrræða í starfsendurhæfingu
  • byggja upp og stuðla að samstarfi allra þeirra aðila sem koma að starfsendurhæfingu viðkomandi einstaklinga
  • hafa áhrif á viðhorf og athafnir í samfélaginu til að stuðla að aukinni virkni starfsmanna
  • styðja við rannsóknir og þróunarvinnu á sviði starfsendurhæfingar.

Meginverkefni Starfsendurhæfingarsjóðs eru að:

  • skipuleggja og hafa umsjón með störfum ráðgjafa sem starfa aðallega á vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og munu aðstoða einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda.   Starfsendurhæfingarsjóður  greiðir kostnaðinn af störfum ráðgjafanna ásamt því að hafa umsjón og eftirlit með starfi þeirra og veita þeim faglegan stuðning.  Sérstök áhersla er lögð á snemmbært inngrip með starfsendurhæfingarúrræðum í samstarfi við sjúkrasjóði og atvinnurekendur
  • greiða kostnað af ráðgjöf ýmissa fagaðila um mótun sérstakrar einstaklingsbundinnar endurhæfingaráætlunar, s.s. lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
  • greiða fyrir kostnað við úrræði og endurhæfingu með áherslu á að auka vinnugetuna, til viðbótar því sem þegar er veitt af hinni almennu heilbrigðisþjónustu í landinu. 

Önnur verkefni Starfsendurhæfingarsjóðs eru að:

  • stuðla að aukinni fjölbreytni og framboði úrræða í starfsendurhæfingu
  • byggja upp og stuðla að samstarfi allra þeirra aðila sem koma að starfsendurhæfingu
  • hafa áhrif á viðhorf og athafnir í samfélaginu sem stuðla að aukinni virkni einstaklinga
  • styðja við rannsóknir og þróunarvinnu á sviði starfsendurhæfingar.

Nánari upplýsingar um starfsemi VIRK má finna á heimasíðu sjóðsins.

Vefumsjón