Eldri félagar á bekknum við hús félagsins á Ísafirði
Eldri félagar á bekknum við hús félagsins á Ísafirði
Verkalýðsfélag Vestfirðinga hvetur þá félagsmenn sem eru 60 ára eða eldri og hafa verið að fá atvinnuleysisbætur ásamt því að fá greiddan séreignarlífeyrissparnað til að kanna hvort bætur þeirra hafi verið skertar vegna þessa. En breytingar voru gerðar á lögum um atvinnuleysistryggingar með lögum nr. 70/2010, sem tóku gildi í júní sl. Breytingar þessar fela meðal annars í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði, geta átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysis-tryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingarinnar. Þetta á hins vegar ekki við um þá sem eru yngri en 60 ára þar sem greiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum skerða ekki greiðslur til þeirra úr Atvinnuleysistryggingasjóði....
Meira
Lóndrangar
Lóndrangar
« 1 af 2 »
Við minnum á helgarferð félagsins á Snæfellsnes 13. - 15. ágúst. Snæfellsnes er rómað fyrir náttúrufegurð og þar eru fjölbreytilegri jarðmyndanir en á flestum öðrum stöðum.
Ótal sérstæðir og fallegir staðir verða á leið þeirra sem fara í þessa ferð, t.d. Arnarstapi, Lóndrangar og Þúfubjarg, þar sem Kolbeinn Jöklaskáld kvaðst á við Kölska forðum og Djúpalónssandur og Dritvík sem geyma minjar um merkilega útgerðarsögu. Yfir öllu þessu gnæfir Snæfellsjökull, eitt af formfegustu fjöllum Íslands, sem margir telja óþrjótandi orkuuppsprettu.
...
Meira

1. júní 2010 hækkuðu kauptaxtar á almenna vinnumarkaðinum um kr. 6.500 á mánuði. Bónus og premía hækkuðu þá um 2,5% og sömuleiðis ákvæðisvinna. Lágmarkshækkun 1. júní var 2,5%, þannig að þeir sem voru á hærri launum en taxtar sögðu til um, áttu að hækka um a.m.k. þá prósentutölu. Alltaf er viss hætta á að slíkar lágmarkshækkanir skili sér ekki, vegna gleymsku eða af öðrum ástæðum og því er minnt á þetta nú.


Félagsmenn verða sjálfir að fylgjast með hvort atvinnurekandinn stendur skil á 2,5% hækkuninni eins og vera ber

...
Meira
Vegna forfalla er orlofshús  í Svignaskarði laust vikuna 13. - 20. ágúst. Svignaskarð er vinsælasti orlofsdvalarstaður félagsins. Fyrstir koma - fyrstir fá.

Upplýsingar um lausar vikur í orlofshúsum Verk-Vest eru hér.
Nú um þessi mánaðarmót hafa fyrirtæki sem sérhæfa sig í vega- og mannvirkjagerð enn þurft að segja upp starfsfólki. Gera má ráð fyrir að þessar uppsagnir varði rúmlega 200 manns á landinu öllu. Þessir einstaklingar bætast nú við þá tæplega þá 17 þúsund einstaklinga sem eru í atvinnuleit á Íslandi í dag. Ef stjórnvöld í landinu ætla ekki að bregðast við ákalli um auknar framkæmdir má gera ráð fyrir atvinnuleysi festi sig í sessi til lengri tíma, hagvöxtur í landinu frestist og efnhagslægðin verði lengri og erfiðari. Stjórnvöld í landinu verða að átta sig á því að auknar framkvæmdir skila sér að miklu leiti aftur í ríkiskassann....
Meira
Fyrri síða
1
234567777879Næsta síða
Síða 1 af 79
Vefumsjón