Orlofssjóður Verk-Vest
Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður félagsmönnum fjölbreytta valkosti í orlofsdvalarstöðum víðs vegar um landið:
Staðsetning svæðanna sést á kortinu hér til hliðar. Frekari upplýsingar um húsin og íbúðirnar, s.s. stærð, búnað, umhverfi, leiguskilmála o.fl. fást með því að smella á viðeigandi tengil hér fyrir neðan.
Meginatriði sem hafa þarf í huga:
- Skrifstofa félagsins sér um úthlutun og leigu nema um annað sé getið í umfjöllun um einstök orlofssvæði. (Vinstri dálkur)
- Lykla þarf að vitja á tilsettum tíma. Ef leigutaki tefst er bráðnauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti geta orðið vandræði með afhendingu lykla.
- Bannað er að framselja leigusamninga. Leigutaki ber ábyrgð á húsinu/íbúðinni og öllu sem því fylgir. Það getur því orðið dýrt spaug að framselja öðrum leigusamning.
- Allt húsdýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest að viðlögðum tafarlausum brottrekstri.
- Leigutaki gengur vel um, þrífur eftir sig og skilar húsinu/íbúðinni og öllum búnaði hreinu og tilbúnu fyrir næsta leigjanda. Vanhöld á þessu geta orðið til þess að þrifið verði á kostnað síðasta leigutaka.
- Framsal á leigusamningi eða alvarleg brot á öðrum reglum eða skyldum sem leigutakar gangast undir með leigusamningi geta valdið því að félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis.
Orlofsbústaðir
Orlofsíbúðir
- Akureyri
- Reykjavík