Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga, sem haldinn var 12. maí 2026, samþykkti ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að ráðast tafarlaust í aðgerðir til að bæta stöðu samgangna, orkumála og byggðaskilyrða á Vestfjörðum.
Í ályktuninni er meðal annars lögð áhersla á aukið afhendingaröryggi raforku, uppbyggingu raforkuframleiðslu á Vestfjörðum og jöfnun flutnings- og húshitunarkostnaðar. Þá er kallað eftir því að samgöngubætur verði settar í forgang, sérstaklega heilsárs vegasamband milli norður- og suðursvæðis Vestfjarða með jarðgangagerð.
Fundurinn gagnrýnir jafnframt auknar álögur á ökutæki og kílómetragjald sem leggst þungt á landsbyggðina og skorar á stjórnvöld að tryggja öruggar heilsárs flugsamgöngur til Bíldudals, Ísafjarðar og Gjögurs.
Ályktunina í heild sinni má lesa hér að neðan:
Ályktun um samgöngu- og byggðamál
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga, haldinn 12. maí 2026, krefst þess að stjórnvöld komi á samræmdu kerfi til jöfnunar flutnings- og húshitunarkostnaðar ásamt því að afhendingaröryggi raforku verði tryggt. Strax verði ráðist í nauðsynlega uppbyggingu raforkuvera á Vestfjörðum hvort sem það verði sjávar- eða vatnsfallsvirkjanir. Slíkar framkvæmdir eru samfélagslega hagstæðasti kosturinn í stöðunni til lengri tíma. Hætta er á að miklar álögur á atvinnulífið í formi óhóflegs flutningskostnaðar raforku ásamt erfiðum rekstrarskilyrðum vegna ótryggrar raforku ógni atvinnuöryggi í fjórðungnum. Koma verður í veg fyrir neikvæða þróun byggðar og tryggja atvinnuöryggi með styrkingu á þessum grunnþáttum.
Setja verði bættar samgöngur efst á forgangslistann og þar verði heilsársvegtenging norður- og suðursvæðis Vestfjarða sett á oddinn. Tryggja þarf heilsárs hringtengingu vega með jarðgöngum úr Álftafirði yfir til Skutulsfjarðar (Ísafjarðarbæ) sem eiga vera forgangsverkefni hér á Vestfjörðum ásamt gögnum undir Mikladal og Hálfdán.
Fundurinn skorar einnig á stjórnvöld að lækka nú þegar nýtilkomnar álögur á ökutæki sem og endurskoða eða fella niður kílómetragjaldið sem er nýjasti landsbyggðar skatturinn.
Aðalfundurinn skorar á Vestfjarðastofu, sveitarstjórnir á Vestfjörðum og þingmenn í Norðvestur kjördæmi að tryggja öruggar heilsárs flugsamgöngur til Bíldudals, Ísafjarðar og Gjögurs. Fundurinn hafnar skerðingu á þessari lífs nauðsynlegu samgönguæð okkar Vestfirðinga.
Vestfirðingar eru ekki að biðja um meira en aðrir, eingöngu þau sjálfsögðu mannréttindi að búsetuskilyrði hér geti orðið á við það sem best gerist á Íslandi.


