Bág fjárhagsstaða og andlegt álag hjá starfsfólki í leikskólum

Ný skýrsla frá Vörðu – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins sýnir að starfsfólk í leikskólum býr við lakari fjárhagsstöðu, meiri skort og verri andlega heilsu en annað launafólk. Niðurstöðurnar byggja á umfangsmikilli könnun meðal félagsmanna í Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og BSRB.

Samkvæmt skýrslunni getur tæpur helmingur leikskólastarfsfólks (49%) ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að skuldsetja sig. Hlutfallið er einnig hátt meðal starfsfólks í grunnskólum (37%) en lægra hjá launafólki almennt (30%). Þá býr þriðjungur leikskólastarfsfólks við félags- og efnislegan skort, sem er hærra hlutfall en í öðrum hópum.

Foreldrar sem starfa í leik- og grunnskólum eru einnig líklegri til að eiga í erfiðleikum með að standa undir grunnþörfum barna sinna, svo sem kostnaði vegna félagslífs, fatnaðar og næringar.

Munur kemur einnig fram á stöðu á húsnæðismarkaði. Aðeins 57% leikskólastarfsfólks býr í eigin húsnæði samanborið við 73% þeirra sem starfa í grunnskólum.

Skýrslan dregur jafnframt upp áhyggjuefni varðandi andlega heilsu. Um 38% leikskólastarfsfólks mælist með slæma andlega heilsu og nær helmingur upplifir þreytu og orkuleysi stóran hluta tímans.

Niðurstöðurnar undirstrika þörf á að bæta kjör og starfsaðstæður þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum, enda gegna þeir lykilhlutverki í samfélaginu.

Könnunin var framkvæmd sumarið 2025 og bárust tæplega 25.000 svör, sem er mesti fjöldi svarenda frá upphafi.

Lesa má skýrsluna í heild sinni hér.

Hér að neðan má sjá kynningu á helstu niðurstöðum könnunarinnar: