Translate to

Fréttir

1. maí hátíðarhöldin á Ísafirði og Suðureyri

Kröfugangan á Ísafirði 2012. Mynd: vestur.is Kröfugangan á Ísafirði 2012. Mynd: vestur.is
Björn Snæbjörnsson í Endinborg. Mynd: bb.is Björn Snæbjörnsson í Endinborg. Mynd: bb.is
Yngri kynslóðin á Suðureyri lét ekki sitt eftir liggja.

Ljósm. Sturla Sturluson. Yngri kynslóðin á Suðureyri lét ekki sitt eftir liggja. Ljósm. Sturla Sturluson.
Fjölmenning ríkir á Suðureyri og allir taka þátt.

Ljósm. Sturla Sturluson. Fjölmenning ríkir á Suðureyri og allir taka þátt. Ljósm. Sturla Sturluson.
Ungt sundfólk á Suðureyri kippir sér ekki upp við kuldann.

Ljósm. Sturla Sturluson Ungt sundfólk á Suðureyri kippir sér ekki upp við kuldann. Ljósm. Sturla Sturluson
Ræðumaður dagsins og Lilja Rafney stýrimaður hátíðahaldanna.

Ljósm. Sturla Sturluson. Ræðumaður dagsins og Lilja Rafney stýrimaður hátíðahaldanna. Ljósm. Sturla Sturluson.
Glæsilegt kaffihlaðborð á Suðureyri.

Ljósm. Sturla Sturluson Glæsilegt kaffihlaðborð á Suðureyri. Ljósm. Sturla Sturluson
Og ekki spilla frammistöðustúlkurnar.

Ljósm. Sturla Sturluson Og ekki spilla frammistöðustúlkurnar. Ljósm. Sturla Sturluson
Krafan er skýr.

Ljósm. Sturla Sturluson Krafan er skýr. Ljósm. Sturla Sturluson
Góð þátttaka var í kröfugöngu og hátíðarsamkomu sem stéttarfélögin stóðu fyrir á Ísafirði og Suðureyri á baráttudegi launþega 1. maí. Að venju hófust hátíðarhöldin á Ísafirði með kröfugöngu þar sem gengið var með Lúðrasveit Ísafjarðar í broddi fylkingar frá húsi Verk Vest að Edinborg þar sem hátíðardagskráin fór fram. Þar var boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem saman stóð af tónlist, leiklist og ræðum. Má þess geta að af þessu tilefni var frumflutt leikrit Elfars Loga Hannessonar "Í vinnufötum og slitnum skóm - verkalýðssaga Vestfirðinga."  En leikþátturinn byggist á bók Sigurðar Péturssonar sagnfræðings " Vindur í seglum" og fjallar um upphafsár verkalýðsbaráttu okkar Vestfirðinga. Lúðrasveitin lék nokkur lög fyrir gesti ásamt því sem BMW gengið steig á stokk og spilaði nokkur lög. Þá fluttu nemendur Menntaskólans á Ísafirði nokkur lög úr söngleiknum Grease sem sýndur var fyrir fullu húsi fyrr í vetur.

 Aðalræðumaður dagsins var Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju og Starfsgreinasambands Íslands. Í ræðu sinni gerði Björn að umtalsefni þau réttindi sem áunnist hefði í gegnum tíðina og margir tækju sem sjálfsagðan hlut í dag. Fyrir þessum réttindum hefði verkafólk barist með samstöðuna að vopni og náð fram sigrum. Í því samhengi vísaði Björn einnig til samstöðu okkar landsbyggðarfólks þegar kæmi að málum sem að okkur snéri svo sem samgöngumálum. Þar mættum við ekki lát reka fleig í raðir okkar heldur yrðum við að standa saman að þeim verkefnum sem skipti okkur mestu máli. Þá voru atvinnumálin í brennidepli ásamt þeirri ólgu sem hefði verið innan verkalýðshreifingarinnar síðustu misseri. Ræðu Björns í heild sinni má nálgast hér.

Herdís Hubner grunnskólakennar á Ísafirði flutti hátíðargestum pistilinn þar sem hún benti einnig líkt og Björn á þá nauðsyn að við landsbyggðarfólk yrðum að snúa bökum saman. Grasið væri ekki alltaf grænna hinu megin við lækinn. Þá gerði Herdís að umtalsefni þá staðreynd að okkur Vestfirðingum væri að fækka ískyggilega hratt, og nefndi sem dæmi að á síðustu fjórum árum hefði börnum við Grunnskóla Ísafjarðar fækkað um 100. Vegna þess yrði í fyrsta skipti í langann tíma að segja upp kennurum við skólann. Pistil Herdísar í heild sinni má nálgast hér.

Að loknum hátíðarhöldum var boðið upp á kaffi og kökuhlaðborð í Guðmundarbúð, þar sem slysavarnarkonur sáu um kaffiveitingarnar að vanda.

1. maí hátíðarhöldin á Suðureyri tókust mjög vel eins og jafnan áður. Hátíðarhöldin voru með hefðbundnum hætti og góð þátttaka var í kröfugöngu og boðsundi barna, kaffiveitingar voru í félagsheimilinu þar sem um 130 manns komu í kaffi og hlýddu á ræðu dagsins sem Valdimar Hreiðarsson flutti og var að henni gerður góður rómur. Ræða Valdimars er hér.
Einnig var boðið upp á söng og tónlistaratriði barna og endað var á leikverki úr vestfirskri verkalýðssögu sem Elfar Logi flutti við góðar undirtektir.
Að venju stýrði Lilja Rafney Magnúsdóttir hátíðahöldunum. Hún lætur ekki deigan síga 1. maí þrátt fyrir annasöm störf á Alþingi.



Deila