Translate to

Fréttir

Desemberuppbót 2022

Kjarasamningum samkvæmt fær launafólk greidda desemberuppbót, en skilyrði uppbótar má finna í viðeigandi kjarasamningi sem finna má á kjaravef Verk Vest.

Hér eru upplýsingar um upphæðir og síðasta greiðsludag miðað við fullt starf:

  • Almennur vinnumarkaður: Kr. 98.000 sem greiðist í síðasta lagi 15. desember (flestir atvinnurekendur greiða þetta út með launum 30.nóv.)
  • Ríkisstarfsmenn: Kr. 98.000 sem greiðist 1. desember.
  • Starfsmenn sveitarfélaga: Kr. 124.750 sem greiðist 1. desember.
  • Kalkþörungaverksmiðjan Bíldudal kr. 131.804
  • Þörungaverksmiðjan Reykhólum kr. 145.203
  • Sjómenn: Sjómenn fá ekki desemberuppbót.

Fáir þú ekki greidda desemberuppbót en ert á vinnumarkaði eða hefur efasemdir um að uppbótin sé rétt reiknuð má senda fyrirspurnir á postur@verkvest.is eða í síma 456 5190.

Deila