Translate to

Fréttir

Hollvinir samfélagsins - pistill forseta ASÍ

Drífa Snædal, forseti ASÍ Drífa Snædal, forseti ASÍ

Endurnýjuð ríkisstjórn verður væntanlega kynnt til sögunnar á allra næstu dögum. Þessi ríkisstjórn þarf að taka á efnahagslegum afleiðingum kóvid-faraldursins og stendur því frammi fyrir klassískum spurningum stjórnmálanna. Á að verja innviði samfélagsins og beita jöfnunartækjum til að draga úr ójöfnuði í kjölfar kreppu? Eða á að nýta tækifærið með vísan til skulda ríkissjóðs, afhenda fjármálaöflum sameiginlegar eigur og auka þannig ójöfnuð til að fáir útvaldir geti makað krókinn. Fjármagnseigendur eru með fullar hendur fjár og um allan heim bíða þeir eftir að komast yfir samfélagslegar eigur því þar er helsta gróðavonin um þessar mundir. Að reka hluta af grunninnviðum fyrir ríkið „tryggir greiðsluflæði“ eins og það heitir á fjármálatungumáli. Á venjulegu máli heitir það að vera með hendurnar í vasa skattgreiðenda, eða vera hreinlega á ríkisspenanum. Innviðirnir verða að vera til staðar, þeir mega ekki klikka og því er ljóst að ríkið hleypur undir bagga ef í harðbakkann slær. Þetta er módel sem getur ekki klikkað fyrir fjármagnseigendur og hefur um áratugaskeið verið kynnt fyrir almenningi sem hagkvæmni í rekstri. Ríkið hefur minnkað skuldir sínar með því að fá einkaaðila til verka og bindast þeim svo notenda- eða leigusamningsböndum um ókomna tíð, sem alla jafna eru dýrari fyrir skattgreiðendur. Hagkvæmnin er því aðeins til á pappír og í vösum fjármagnseigenda.

Þetta er ekki samsæriskenning heldur raunveruleg staða. Fjárfestingasjóðir undirbúa nú innviðasókn í trausti þess að ríkisstjórnin vinni með þeim. Slíkt er ekki almenningi í hag, að selja eða gefa frá sér sameiginlegar eigur og greiða svo fyrir þær leigu eða þjónustugjöld í fyrirsjáanlegri framtíð. Það er skaðleg hugmyndafræði sem meira að segja íhaldssömustu alþjóðastofnanir vara við í kjölfar niðursveiflunnar og ýmis lönd reyna að vinda ofan af slíkum afdrifaríkum mistökum fortíðar.

Það verður áhugavert að vita hvaða öfl innan stjórnmálanna munu leggjast á sveif með almenningi í þessu máli og hvaða öfl ætla að leyfa fjármagnsöflunum að vaða uppi. ASÍ mun fylgjast náið með þróuninni, en almenningur verður líka að eiga sína hagsmunaverði í hópi stjórnmálamanna. Saman eiga slíkir stjórnmálamenn, verkalýðshreyfingin og félagasamtök að mynda öflugt þrýstiafl sem stendur vörð um velferð, eignir og þjónustu sem við höfum byggt upp síðustu áratugi og eigum sem samfélag að njóta góðs af.

Góða helgi,

Drífa

Deila