Translate to

Fréttir

Kjarasamningur við sveitarfélögin samþykktur

Starfsfólk sveitarfélaga í 13 aðildarfélögum SGS hefur samþykkt kjarasamninginn sem undirritaður var 1. júlí síðastliðinn í sameiginlegri rafrænni atkvæðagreiðslu. Já sögðu 78,84% en nei sögðu 21,16%. Alls voru 2.515 félagar á kjörskrá en 378 greiddu atkvæði (15% kjörsókn).

Eftirtalin félög gáfu Starfsgreinasambandinu umboð til að undirrita kjarasamning: AFL – starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining – Iðja, Stéttarfélagið Samstaða, Stéttarfélag Vesturlands, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands og Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

Þarna var í fyrsta skipti notuð rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla á vegum Starfsgreinasambandsins. Á vef sambandsins segir að atkvæðagreiðslan hafi tekist vel í öllum aðalatriðum. Vissulega hafi kjörsókn verið dræm, en þar geti sumarfrí hafa haft mikil áhrif.

Ekki var annað að sjá en að fólk kunni vel að meta það að geta greitt atkvæði rafrænt, segir að lokum á vef SGS.

Deila