Translate to

Fréttir

Köllum eftir raunhæfum lausnum: Fólk í fullri vinnu þarf að geta séð fyrir sér

Fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hefur verið tíðrætt um tilboð sem þau gerðu verkalýðshreyfingunni og er mikilvægt að halda ákveðnum atriðum til haga í því sambandi:

SA lýsti því yfir við fyrirtæki innan samtakanna að verkalýðshreyfingin hafi hafnað tilboðinu áður en Starfsgreinasambandið fékk að sjá nokkurt tilboð. Áður höfðu önnur landssambönd og félög innan verkalýðshreyfingarinnar greinilega fengið slíkt tilboð og hafnað því samstundis.

Almennar launahækkanir sem SA bauð í tilboðinu er 14% á þremur árum, að meðaltali 30.000 króna hækkun taxta á þremur árum. Aðrar launahækkanir í tilboðinu voru tilfærslur sem verkafólk greiddi sjálft með lækkun yfirvinnuprósentu og lengingu dagvinnurammans – við erum ekki til viðræðu um slíkt nema það sé tryggt að hægt sé að lifa á dagsvinnulaunum, svo var ekki í tilboðinu.

Lágmarkstekjutryggingin sem í dag er 214.000 krónur eftir 4 mánaða starf var hækkuð í tilboðinu og endaði í 280.000 krónum eftir tvö ár eftir 6 mánaða starf hjá sama fyrirtæki – inni í þessari tryggingu er hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur.

Samninganefnd Starfsgreinasambandsins var þess fullviss eftir lestur tilboðsins að samningur á þessum grunni yrði felldur í atkvæðagreiðslu og til lítils unnið að fara með hann fyrir samninganefndir einstakra félaga.

Það er að sjálfsögðu á ábyrgð samninganefndar Starfsgreinasambandsins að taka vel í raunhæf tilboð en þetta var ekki slíkt.

Hvað varðar yfirlýsingar SA um að tilboðið sé hærra en allar samningsniðurstöður í kjarasamningum síðustu ár þá má rifja upp samning sem gerður var við flugmenn og flugstjóra og undirritaður í desember 2014. Sá samningur gaf starfsfólkinu hundruðir þúsunda í launahækknun næstu tvö ár.

Starfsgreinasambandið heldur ótrautt áfram að vinna að samningi fyrir verkafólk um allt land sem gefur viðunandi niðurstöðu og er að sjálfsögðu til viðræðu um allar raunhæfar lausnir í því máli.

 

Deila