Translate to

Fréttir

PÁSKAVIKAN - OPNAÐ FYRIR UMSÓKNIR

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir páskavikuna 2023. 

Orlofshúsin sem eru í úthlutun eru íbúðir í Kópavogi og íbúð á Akureyri og sumarhúsin í Svignaskarði og Ölfusborgum.

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 2. mars 2023.

Úthlutun fer fram 3. mars og munu allir þeir sem sóttu um fá senda niðurstöðu úthlutunarinnar í tölvupósti.

Deila