Næsta útleigutímabil orlofseigna opnar 15. september

Þriðjudaginn 15. september kl. 08:00 opnar næsta útleigutímabil orlofseigna Verk Vest fyrir félagsfólk á Mínum síðum.

Útleigutímabil

Íbúðir:
📅 4. janúar 2027 – 13. september 2027

Orlofshús:
📅 4. janúar 2027 – 14. maí 2027

Tímabilið 14. maí – 13. september 2027 fyrir orlofshús fer í sérstaka sumarúthlutun, sem verður auglýst sérstaklega eftir áramót.

Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér úrval orlofseigna og vera tímanlega á Mínum síðum þegar opnað verður fyrir bókanir.