Nýr orlofskostur

Orlofsgisting að eigin vali

Kæru félagsmenn,

Í ár býðst félagsfólki Verk Vest nýr og sveigjanlegur orlofskostur – Orlofsgisting að eigin vali.

Félagsmenn geta sótt um endurgreiðslu vegna gistingar, hvort sem um er að ræða:

  • Hótelgistingu
  • Leigu á bústöðum, orlofshúsum eða íbúðum (t.d. húsið á Spáni eða íbúðirnar í Sunnusmára og á Akureyri)
  • Tjaldstæðagistingu

Endurgreiðsla fæst gegn framvísun staðfests og greidds reiknings frá söluaðila.

Styrkupphæð og skilyrði

  • Hámarksendurgreiðsla: 30.000 kr. á ári.
  • Félagsmaður þarf að hafa greitt iðgjöld til félagsins í að lágmarki 12 mánuði.
  • Frádráttur er 5 punktar fyrir hverjar 10.000 kr. sem greiddar eru út í styrk.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn

  • Staðfestur og greiddur reikningur stílaður á nafn félagsmanns.
  • Greiðslukvittun eða staðfesting á greiðslu (banka- eða kortayfirlit).
  • Ekki fæst endurgreitt fyrr en gisting að eigin vali hefur verið nýtt