Translate to

VIRK - endurhæfing

Ný myndbönd um starfsvin á vinnustað

Víða erlendis hafa vinnustaðir góða reynslu af því að vera með starfsvin þegar starfsfólk er að koma til baka á eigin vinnustað eftir langtímaveikindi eða þegar nýtt starfsfólk er ráðið inn sem hefur ekki verið á vinnumarkaði lengi. VIRK er um þessar mundir að skilgreina hlutverk starfsvina (mentora) á vinnustöðum sem getur verið margbreytilegt eftir aðstæðum. 

Með því að smella á hnappinn hægra megin á síðunni sem heitir Fræðslumyndbönd er hægt að skoða myndbönd um fjarverustjórnun og myndbönd um starfsvin. Taka skal þó fram að hér um dönsk myndbönd að ræða sem byggjast á dönskum aðstæðum og vinnureglum og því er ekki endilega um hliðstæðu að ræða við hlutverk starfsvinar eins og VIRK mun kynna þau. Myndböndin eru með íslenskum texta.
Sjá nánar á virk.is 

Deila