Translate to

VIRK - endurhæfing

Nýtt skipurit VIRK

„Starfsemi VIRK hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár og á sama tíma þá erum við sífellt að þróa og bæta okkar vinnuferla með það að markmiði að auka hagkvæmni og árangur.Til að svo megi verða þá er eðlilegt að skipuritið þróist og breytist í takt við þarfir starfseminnar.“ segir Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK um nýtt skipurit starfsendurhæfingarsjóðsins sem tók gildi 20. nóvember sl. „Með nýju skipuriti er m.a. lögð aukin áhersla á faglega þróun, mannauðsmál, betra utanumhald verkefna og styttri boðleiðir í upplýsingagjöf og það er von mín og annarra stjórnenda VIRK að þessar breytingar auki bæði árangur og skilvirkni í starfsemi VIRK“.

Í nýja skipuritinu er deildum innan Starfsendurhæfingarsviðs VIRK fækkað í tvær auk þess að stoðsvið eru nú þrjú. Lögð er aukin áhersla á að nýta aðferðarfræði verkefnastjórnunar í faglegum verkefnum og komið á fót verkefnastofu VIRK en í henni starfa sjálfstæðir verkefnastjórar yfir verkefnum sem fara þvert á svið og deildir – oft bæði innan og utan Starfsendurhæfingarsviðs.

Sjá nánar í frétt á virk.is.

Deila