Translate to

VIRK - endurhæfing

VIRK framtíð

Í vetur hefur verið unnið á markvissan hátt að mótun á framtíðarsýn og stefnu VIRK.  Niðurstöður þessarar vinnu voru kynntar á ársfundi VIRK í apríl síðastliðnum m.a. með útgáfu á sérstökum bæklingi sem ber heitið "VIRK framtíð".  Rafræna útgáfu af þessum bæklingi er að finna hér á heimasíðunni (sjá einnig hér til vinstri á heimasíðunni undir "Stefnur og reglur VIRK").

Í þessu samhengi hefur m.a. verið mótuð metnaðarfull framtíðarsýn VIRK til ársins 2020:

Framtíðarsýn til 2020:

  • VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi þar sem dregið hefur verulega úr nýgengi á örorku
  • VIRK byggir á gagnreyndri þekkingu, rannsóknum og reynslu sem tryggir samþætta, árangursríka og örugga þjónustu á sviði starfsendurhæfingar
  • VIRK hefur í samvinnu við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir unnið að því að ryðja úr vegi  hindrunum gegn aukinni atvinnuþátttöku einstaklinga með skerta starfsgetu
  • VIRK er virt þekkingarsetur og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar

Í bæklingnum VIRK framtíð er að finna nánari upplýsingar um hlutverk, framtíðarsýn og gildi VIRK auk helstu þætti starfsáætlunar fyrir tímabilið 2013-2014.

Lesa meira

Deila