VIRK Starfsendurhæfingarsjóður stendur fyrir málþingi um velferð og fjarvistir á vinnustöðum þann 5. maí 2015 á Grand Hótel þar sem niðurstöður þróunarverkefnisins „Virkur vinnustaður“ verða kynntar. Jónína Waagfjörð deildarstjóri hjá VIRK, Vilhjálmur Kári Haraldsson mannauðsstjóri Garðabæjar, Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri Norðlenska, Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, Álfheiður M. Sívertsen frá Samtökum atvinnulífsins og Rannveig J. Bjarnadóttir leikskólastjóri flytja erindi á málþinginu. Fundarstjóri verður Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent við Háskóla Íslands. Málþingið er öllum opið. Frekari upplýsingar um þróunarverkefnið Virkan vinnustað má finna á vefsíðu VIRK. Munið ársfund VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs sem haldinn verður þriðjudaginn 21. apríl 2015 kl. 13:00 – 15:00 á Grand Hótel. Fundurinn er öllum opinn og hægt er að skrá þátttöku hér