Translate to

Orlofssjóður

Orlofssjóður

Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður félagsmönnum fjölbreytta valkosti í orlofsdvalarstöðum víðs vegar um land og íbúð á Spáni.

Frekari upplýsingar um húsin og íbúðirnar, s.s. stærð, búnað, umhverfi, leiguskilmála o.fl. fást með því að skrá inn sig inn á orlofshúsavef með rafrænum skilríkjum eða íslykli

Meginatriði sem hafa þarf í huga:

  • Félagsmenn geta pantað íbúð/sumarhús inn á orlofshúsvef félagsins með rafrrænum skilríkjum eða íslykli.
    • Ath. að sérstakar reglur eiga þó við um sumarúthlutun.
  • Lykla af íbúðum þarf að sækja á skrifstofur VerkVest og skila aftur þangað að dvöl lokinni.
  • Lyklar af sumarhúsum eru almennt í lyklaboxi og númer þess gefið upp á samningi. Í einhverjum tilfellum er lykill hjá umsjónarmanni á staðnum og þarf að vitja hans á tilsettum tíma. Ef leigutaki tefst er bráðnauðsynlegt að láta umsjónarmann vita.
  • Það er með öllu óheimilt er að framselja leigusamninga. Leigutaki ber ábyrgð á húsinu/íbúðinni og öllu sem því fylgir. Félagsmaður sem verður uppvís af framsali á leigusamning verður meinaður aðgangur að íbúðum og húsum félagsins.
  • Allt húsdýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest að viðlögðum tafarlausum brottrekstri.
  • Leigutaka ber að ganga vel um, þrífa eftir sig og skila húsinu/íbúðinni og öllum búnaði hreinum og tilbúnu fyrir næsta leigjanda. Verði vanhöld á þessu er þrifið á kostnað leigutaka.
  • Hér má lesa nánari leiðbeiningar um íbúðir félagsins.

Félagið greiðir einnig götu félagsmanna í sumarleyfinu með afsláttarkjörum á hótelum og gististöðum ásamt afsláttarkortum svo sem Útilegukorti og Veiðikorti. Nánari upplýsingar um kaup á afsláttarmiðum og öðrum afslætti er að finna á orlofsvefnum.

Orlofsbústaðir

  • Flókalundur í Vatnsfirði
  • Svignaskarð í Borgarfirði
  • Ölfusborgir við Hveragerði
  • Illugastaðir í Fnjóskadal
  • Einarsstaðir á Héraði

Orlofsíbúðir

  • Akureyri
    • Furulundur 8F Akureyri
  • Kópavogur
    • Sunnusmári 16-18
  • Spánn
    • Alicante (Arenales del sol)