Translate to

Tilkynningar

Nýr fræðsluvefur um lífeyrismál

Mánudaginn 29. október sl. var opnaður nýr fræðsluvefur Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er http://www.gottadvita.is/. Vefnum er skipt í tvo megin þætti.  Annars vegar er að finna mikilvægar spurningar og svör um lífeyrissjóðina og lífeyrisréttindi.
Efnið þar er byggt á upplýsingariti Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál, Lífeyrissjóðurinnn þinn, sem er ætlað að upplýsa sjóðfélaga lífeyrissjóða um réttindi þeirra og landsmenn almennt um lífeyrismál. Þessi kafli er einnig á dönsku, ensku og pólsku og er það gert vegna hinna fjölmörgu erlendu launamanna, sem vinna hér á landi og eignast lífeyrisréttindi í íslenskum lífeyrissjóðum.


Hins vegar eru spurningar og svör fyrir þá sem eru hefja störf á vinnumarkaði og byrja að greiða í lífeyrissjóð, en samkvæmt lögum eiga allir vinnandi menn á aldrinum 16 til 70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð. Í þessum kafla er hægt að fræðast um lífeyrisréttindi og um almennar ráðleggingar Landssamtaka lífeyrissjóða til nýrra sjóðfélaga. Vefurinn er uppsettur með það að leiðarljósi að auðvelt sé að finna upplýsingar og öll svör tiltölulega stutt og hnitmiðuð. Athyglisverð nýjung er að notendur geta kannað þekkingu sína á lífeyrismálum með krossaprófi.

Ef öllum spurningunum er svarað rétt verður nafn viðkomandi skráð í lukkupott. Dregið verður mánaðarlega úr nöfnum þeirra sem komast í pottinn. Vefnum er ritstýrt af Gunnari Baldvinssyni, framkvæmdastjóra Almenna lífeyrissjóðsins, og Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða.  Á heimasíðum flestra lífeyrissjóða er tengill á fræðsluvefinn.

Deila