Translate to

Um kjaramál

Kjaramál

Verkalýðsfélag Vestfirðinga á aðild að kjarasamningum fyrir landverkafólk, verslunar- og skrifstofufólk, sjómenn, byggingamenn, vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum, starfsfólk á veitinga-, gisti-, þjónustu- og greiðasölustöðum, starfsfólk í fiskeldi, beitninga- og netagerðarfólk, starfsfólk sveitarfélaga, ríkis, t.d. starfsfólk á heilbrigðisstofnunum og hjá vegagerðinni. Þá hefur félagið gert séstakan samning um kjör starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, auk samninga við einstök fyrirtæki með gerð vinnustaðasamninga.

HAFÐU SAMBAND HAFIR ÞÚ EFASEMDIR UM AÐ ÞÚ FÁIR GREIDD RÉTT LAUN!

Hægt er að senda tölvupóst á postur@verkvest.is eða hafa samband símleiðis í síma 456 5190.

Einnig er hægt að tilkynna brot nafnlaust á labour.is

Hægt er að skoða tiltæka kjarasamninga með því að smella hér og síðan á viðeigandi tengla. Einnig eru launatöflur aðgengilegar hér og hvort tveggja er hægt að prenta út eða vista í tölvunni hjá sér.

Nokkrir gagnlegir punktar sem vert er að hafa í huga.

  • Geymdu launaseðla.
  • Launaseðill staðfestir réttindi þín, hann er sönnun fyrir vinnuframlagi og lauagreiðslu.
  • Á launaseðlum kemur fram, hvaða kaup þú hefur, hvaða orlofsrétt þú átt og hvað hefur verið dregið af þér í skatta, lífeyrissjóð og félagsgjöld.
  • Kjarasamningur stéttarfélagsins tryggir þér lágmarksréttindi og lágmarkslaun.
  • Lágmarkstaxti er ekki lögmál, alltaf má borga betur.
  • Allir starfsmenn eiga rétt á skriflegum ráðningarsamningi.
  • Fyrir iðgjald til stéttarfélags færðu þjónustu frá stéttarfélaginu.
  • Þú öðlast rétt til sjúkradagpeninga frá stéttarfélaginu samkvæmt reglum þess.
  • Þú öðlast rétt til að nota orlofshús stéttarfélagsins samkvæmt reglum þess.
  • Þú öðlast rétt til að sækja námskeið á vegum stéttarfélagsins samkvæmt reglum þess.
  • Þú getur tekið þátt í félagslífi hjá stéttarfélaginu.
  • Nauðsynlegt er að staðfesta aðild að stéttarfélagi.
  • Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum.
  • Verktakar njóta ekki sama réttar og launafólk.
  • Leitið til stéttarfélags ef þið eruð í vafa um launakjör og réttindi

Greinar/samantektir um kjaramál

Athyglisverðir dómar

Lög, frumvörp og reglugerðir til hliðsjónar

Úrskurðir Persónuverndar