Farið er yfir hlutverk öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og öryggisnefnda á vinnustöðum. Vinnuverndarlögin og reglugerðir um vinnuverndarmál eru kynnt. Farið er yfir helstu málaflokka vinnuverndarinnar, s.s. líkamsbeitingu, efni og inniloft, vélar og tæki, umhverfisþætti eins og t.d. hávaða og lýsingu og sálfélagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni. Farið er ítarlega yfir áhættumat starfa en það er helsta hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða að framkvæma það og fylgja því eftir.
Námskeiðið fer bæði fram í fjarnámi og útsendingu gegnum Google Meet. Viku fyrir námskeiðið fá þátttakendur senda fyrirlestra og verkefni sem þeir skoða áður en námskeiðið er klárað í fjarfundi á Google Meet. Á fjarfundinum eru rifjuð upp aðalatriði námskeiðsins og farið yfir verkefni námskeiðsins. Einnig verða lögð fyrir raunhæf verkefni í útsendingunni.
Hvenær: 20 apríl klukkan 13 til 15 og á ENSKU 21. apríl
Hvar: á Google Meet
Hvernig: Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og verkefnum, einnig er sýndur fjöldi mynda
Verð: 39.400 kr. á mann, gefinn er afsláttur fyrir hópa
Ávinningur: Aukin þekking á vinnuverndarstarfi, áhættumati og öryggismálum á vinnustöðum
Hagræði: Hægt að senda sérfræðingum spurningar fyrir og eftir námskeiðið
Skráning og nánari upplýsingar: https://vinnuverndarnamskeid.is/index.php/oryggistrunadarmenn-og-oryggisverdir/

Önnur námskeið:
Fallvarnir – Vinna í hæð 13. Apríl
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir 21. apríl á ENSKU
Áhættumat starfa 27. apríl
Verkstjórar í matvælaiðnaði 4. maí
Verkstjóranámskeið almennt 5. maí á ENSKU
Heit vinna 11. maí
Öryggismenning 12. maí
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir 18. maí
Fallvarnir – Vinna í hæð 15. júní
Lokað rými 22. júní
Framkvæmum öryggis- og vinnuverndarúttektir eftir samkomulagi
Vinnuvélanámskeið eru alltaf aðgengileg í fullu fjarnámi á íslensku, ensku og pólsku