Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga fór fram þriðjudaginn 12. maí í Bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði með góðri þátttöku félagsfólks, bæði í sal og á fjarfundi. Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins, ársreikning fyrir árið 2025, stöðu kjaramála og helstu verkefni fram undan.
Í upphafi fundar minntist formaður félagsins, Finnbogi Sveinbjörnsson, Gunnhildar Bjarkar Elíasdóttur, fyrrverandi stjórnarmanns og öflugs trúnaðarmanns félagsins, sem lést á síðasta ári eftir erfið veikindi. Fundargestir heiðruðu minningu hennar með einnar mínútu þögn.

Í skýrslu stjórnar kom fram að félagsmönnum Verk Vest hafi fjölgað og eru þeir nú rúmlega 3.000 talsins. Þá jukust iðgjaldatekjur félagsins umtalsvert milli ára og rekstur sjóða félagsins stendur sterkur. Miklar umræður voru um stöðu kjaramála og aukna ásókn félagsfólks í aðstoð vegna brota á réttindum á vinnumarkaði.
Á fundinum var einnig fjallað um framtíð Alþýðuhússins á Ísafirði. Að loknum umræðum var samþykkt að Alþýðuhúsið yrði áfram í eigu Verk Vest og að ráðist yrði í nauðsynlegar endurbætur á húsinu. Mikil áhersla var lögð á mikilvægi hússins fyrir samfélagið, menningarlíf og sögu verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum.

Aðalfundurinn samþykkti jafnframt ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að ráðast í mikilvægar úrbætur í samgöngu- og orkumálum á Vestfjörðum. Þar var meðal annars lögð áhersla á öruggt afhendingarkerfi raforku, jöfnun flutnings- og húshitunarkostnaðar og bættar heilsárssamgöngur innan fjórðungsins.
Fundinum lauk með happdrætti meðal fundargesta þar sem vinningar voru dvöl í orlofskostum félagsins hérlendis og á Spáni.
Stjórn Verk Vest þakkar félagsfólki fyrir góða mætingu, öflugar umræður og áframhaldandi stuðning við starf félagsins.


