Orlofsgisting að eigin vali
Kæru félagsmenn,
Í ár býðst félagsfólki Verk Vest nýr og sveigjanlegur orlofskostur – Orlofsgisting að eigin vali.
Félagsmenn geta sótt um endurgreiðslu vegna gistingar, hvort sem um er að ræða:
- Hótelgistingu
- Leigu á bústöðum, orlofshúsum eða íbúðum (t.d. húsið á Spáni eða íbúðirnar í Sunnusmára og á Akureyri)
- Tjaldstæðagistingu
Endurgreiðsla fæst gegn framvísun staðfests og greidds reiknings frá söluaðila.
Styrkupphæð og skilyrði
- Hámarksendurgreiðsla: 30.000 kr. á ári.
- Félagsmaður þarf að hafa greitt iðgjöld til félagsins í að lágmarki 12 mánuði.
- Frádráttur er 5 punktar fyrir hverjar 10.000 kr. sem greiddar eru út í styrk.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn
- Staðfestur og greiddur reikningur stílaður á nafn félagsmanns.
- Greiðslukvittun eða staðfesting á greiðslu (banka- eða kortayfirlit).
- Ekki fæst endurgreitt fyrr en gisting að eigin vali hefur verið nýtt
Sótt er um á mínar síður



