Námskeið í boði hjá Vinnuverndarnámskeið ehf.

Vinnuverndarnámskeið ehf. heldur tvö námskeið á ENSKU í október, verkstjóranámskeið 13. október og námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði 20. október. 

Verkstjóranámskeið:

Hver er verkstjóri samkvæmt vinnuverndarlögunum? Hvaða ábyrgð og skyldur hvíla á verkstjóra varðandi vinnuverndar- og öryggismál? Vinnuverndarlögin og reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum eru kynnt. Fjallað verður um mikilvægi þess að verkstjóri sé leiðandi í vinnuverndarstarfi og öryggismenningu vinnustaðarins. 

Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði:

Farið er yfir hlutverk öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og öryggisnefnda á vinnustöðum. Vinnuverndarlögin og reglugerðir um vinnuverndarmál eru kynnt. Farið er yfir helstu málaflokka vinnuverndarinnar, s.s. líkamsbeitingu, efni og inniloft, vélar og tæki, umhverfisþætti eins og t.d. hávaða og lýsingu og sálfélagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni. Farið er ítarlega yfir áhættumat starfa en það er helsta hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða að framkvæma áhættumat og fylgja því eftir.

Nánari upplýsingar og skráning á: https://vinnuverndarnamskeid.is/

Önnur námskeið:

Verkstjóranámskeið 12. október

Fallvarnir – Vinna í hæð 19. október

Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir 26. október

Áhættumat starfa 9. nóvember

Áhættumat starfa ENSKA 10. nóvember

Vinnuslys 23. nóvember

Vinnuvélanámskeið eru alltaf aðgengileg í fullu fjarnámi