Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af framtíð áætlunarflugs til Ísafjarðar og Bíldudals og þeim áhrifum sem áframhaldandi skerðingar geta haft á búsetu, heilbrigðisþjónustu og öryggi Vestfirðinga. Ráðið skorar á ríkisstjórnina og þingmenn kjördæmisins að tryggja öflugar og áreiðanlegar flugsamgöngur til Vestfjarða og falla frá fyrirhuguðum breytingum á Flugbrúnni.
Ályktunina í heild sinni má lesa hér að neðan:
Eiga Vestfirðingar að lifa áfram í óvissu um framtíð flugsins Vestur?
Ítrekaðar skerðingar í flugsamgöngum af því tagi sem íbúar fjórðungsins hafa þurft að búa við undanfarin 5-6 ár leiðir ekki eingöngu til óvissu í samgöngumálum Vestfirðinga, heldur hefur einnig bein áhrif á íbúaþróun með mjög neikvæðum hætti. Einkum og sér í lagi þegar litið er til heilbrigðisþjónustu á svæðinu sem hefur einnig verið skert verulega undanfarin 10-15 ár.
Markaðsgreining á flugi til Ísafjarðar og Bíldudals hefur staðfest að flugið standi ekki undir sér án ríkisstyrks. Vegagerðin segir skilyrði um að styrkja megi flug ströng og flugfélög geti ekki knúið fram styrk. Af þeirri ástæðu er mikilvægt að stjórnvöld stígi inn með afgerandi hætti og tryggi meiri tíðni í áætlanaflugi bæði til Bíldudals og Ísafjarðar.
Áframhaldandi skerðing á tíðni áætlunarflugs skilar Vestfirðingum bara einni niðurstöðu og hún er grafalvarleg. Ásókn í flug mun dragast saman og á endanum leggast niður bregðist stjórnvöld ekki við með afgerandi hætti með auknum stuðningi við innanlandsflugið. Nýjasta útspil innviðaráðherra skapar enn frekari óvissu um flugið vestur. Boðaðar breytingar á Flugbrúnni sem tugir þúsunda hafa nýtt sér til að sækja heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu er feigðarflan sem krefst tafalausra úrbóta. Skorar Trúnaðarráð félagsins á þingmenn kjördæmisins og ríkisstjórnina að hætta við fyrirhugaðar breytingar.
Tryggja þarf áframhaldandi tíðni í áætlunarflugi til bæði Bíldudals og Ísafjarðar ekki síst af heilbrigðis- og öryggisástæðum, en einnig til að styðja betur undir þróun byggðar á Vestfjörðum. Trúnaðarráð félagsins skorar á ríkisstjórnina og ráðherra samgöngumála að tryggja að hingað sé flogið hágæðaflug á sambærilegum flugkosti og íbúum svæðisins hefur staðið til boða.
Krafa Trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga er skýr, góðar samgöngur eru lífæð Vestfirðinga við höfuðborgarsvæðið. Því er bæði réttlátt og sanngjarnt að ríkisstjórn ALLRA Íslendinga tryggi áframhaldandi tíðni og gæði flugs til Bíldudals og Ísafjarðar.


