Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG

Dagana 19 – 20 mars fer fram fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG.

Fundurinn er ætlaður öllu ungu fólki, 16-35 ára, sem hafa áhuga á starfi stéttarfélaga. Viðburðurinn hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í þátttöku í verkalýðshreyfingunni.

Staðsetning: Fundurinn er haldinn á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi sér sjálfir á staðinn. Verk Vest greiðir ferðakostnað. 

Gisting: Hótel Vesturland býður þátttakendum gistingu í eins manns herbergi meðmorgunverði á 23.900 kr. nóttin og tveggja manna herbergi með morgunverði á 25.800 kr.nóttin. Verk Vest sér um að bóka og greiða fyrir gistingu.

Matur: ASÍ-UNG býður þátttakendum léttan hádegisverð báða dagana, sem og í kvöldverð á fimmtudeginum. Morgunverður er innifalinn í gistingu.

Skráning: Þátttakendur þurfa að skrá sig í síðasta lagi þriðjudaginn 10. mars. Verk Vest sendir inn skráningu fyrir sína fulltrúa. 

Allar nánari upplýsingar má fá hjá skrifstofum Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði í síma 4565190 eða á postur@verkvest.is  

Verk Vest hvetur unga félagsmenn til þátttöku!