Sumarúthlutun 2026

Við viljum minna á sumarúthlutun orlofshúsa er nú opin og lokafrestur til að setja inn umsókn er til miðvikudagsins 25. mars (12:00).


Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsfólk í öllum landshlutum sumarið 2026.

  • Einarsstaðir á Héraði (15.05 – 05.06 og 28.08 – 14.09)
  • Flókalundur í Vatnsfirði
  • Illugastaðir í Fnjóskadal
  • Svignaskarð í Borgarfirði (2 eignir)
  • Ölfusborgir við Hveragerði (2 eignir)
  • Hraunholt á Húsavík  Nýtt!  (05.06 til 28.08.)

Orlofshúsin eru leigð í viku frá föstudegi til föstudags nema Illugastaðir þar er skiptidagur fimmtudagur til fimmtudags  Hægt er að sækja um eina viku með allt að fjórum valmöguleikum. Verð fyrir viku er 36.000 krónur en í Flókalundi er það 30.000 krónur. Félagi þarf að eiga að lágmarki 36 punkta til að geta sótt um.

  • Umsóknarfrestur rennur út  25. mars klukkan 12:00
  • Úthlutun fer fram 26. mars.
  • Hægt er að greiða fyrir úthlutanir frá 26.mars til 8. apríl.
  • Þann 13 apríl klukkan 12:00 verður opnað fyrir bókanir þær vikur sem ekki gengu út í sumarúthlutun eða voru ekki greiddar.

Starfsfólk getur aðstoðað félagsfólk eftir þörfum við umsóknir á vefnum. Síminn er 456-5190.

Athugið að á Illugastöðum í Fnjóskadal verða skiptidagar á fimmtudögum.