Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn laugardaginn 8. maí kl.11:00 í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 4 hæð.
Dagskrá:
- 1. Setning fundarins
 - 2. Kosning starfsmanna fundarins
 - 3. Skýrsla stjórnar.
 - 4. Kynntur ársreikningar starfsárið 2009.
 - 5. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
 - 6. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
 - 7. Lögð fram tillaga um laun stjórnar.
 - 8. Kosning fulltrúa á ársfund Lifeyrissjóðs Vestfirðinga
 - 9. Önnur mál.
 
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og nýta málfrelsis, tillögu- og atkvæðisrétt. Að fundi loknum verður boðið upp á veitingar.