Afl í auðlindum Vestfjarða - ráðstefna um atvinnu og byggðamál á Vestfjörðum
								
Afar fjölsóttur fundur um atvinnumál á Vestfjörðum var haldinn á
Ísafirði í dag.  Fundinn sóttu um 150
manns víðsvegar að af Vestfjörðum.  Að
fundinum stóðu verkalýðsfélög og atvinnufyrirtæki á svæðinu, til að vekja
athygli á alvarlegri byggðaþróun á Vestfjörðum. 
Framsögumenn fjölluðu um tækifæri, aðstæður og samkeppnisskilyrði
atvinnufyrirtækja og leiðir til úrbóta.  Ráðherrarnir
Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson, sátu fyrir svörum auk Guðna A
Jóhannessonar, orkumálastjóra sem var fulltrúi iðnaðarráðherra.  Auk þeirra voru fulltrúar viðskiptabankanna,
Fjárfestingarsjóðs Íslands og Orkubús Vestfjarða.
Fram kom í máli innanríkisráðherra að hann hefði skipað starfshóp undir forystu Guðmundar Kristjánssonar, hafnarstjóra á Ísafirði til þess að koma fram með tillögur um strandsiglingar. Var því vel tekið af fundarmönnum. Auk þess lýsti ráðherra því yfir að mest væri þörfin fyrir samgönguframkvæmdir á Vestfjörðum og Austfjörðum og ættu framkvæmdir þar að njóta forgangs að vegafé. Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, lýsti því yfir að fyrirhugaðar breytingar á löggjöf í sjávarútvegi ættu að styrkja stöðu strandveiða og að aukin byggðatenging og byggðafesta myndu styrkja samkeppnisstöðu sjávarbyggða.
Flutt voru þrettán framsöguerindi um skiptinga skatttekna, samgöngur, nýtingu auðlinda og aðgengi að fjármagni. Í máli Vífils Karlssonar, hagfræðings kom fram að stjórnvöld væru að valda verulegu ójafnvægi í milli landssvæða með ráðstöfun skattfjár til starfsemin hins opinbera. Telur Vífill á grundvelli rannsókna sem hann hefur unnið, að landsbyggðin njóti í mun minna mæli ávinnings af ráðstöfun skattfjár.
Ályktanir, glærur og annað efni frá ráðstefnunni mun verða aðgengilegt hér á síðunni innan skamms,