Framhaldsþing SGS hefst í dag
								
								Starfsgreinasamband Íslands mun halda framhaldsþing sambandsins 
fimmtudaginn 10. maí n.k. á Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel 
Loftleiðir). Þingið, sem er undir kjörorðinu „Horft til framtíðar", 
hefst kl. 10:00 með ávarpi Björns Snæbjörnssonar, formanns sambandsins. 
Megináherslur þingsins verða umræður og afgreiðsla nýrra reglugerða og 
laga SGS, en undanfarna mánuði hefur Starfshópur starfsháttanefndar SGS 
unnið að því að móta tillögur um breytingar á lögum SGS sem snúa að 
hlutverki SGS og uppbyggingar á stjórnkerfi sambandsins ásamt því að 
hafa gert tillögur að nokkrum nýjum reglugerðum sem eiga að bæta 
þjónustu og starfsemi sambandsins gagnvart aðildarfélögum SGS. Á þinginu
 verður einnig farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun sambandsins.
Þingið munu sitja 134 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum. Fulltrúar Verk Vest á þinginu eru þau Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður, Eygló Jónsdóttir, gjaldkeri og Gunnhildur B. Elíasdóttir, ritari. Stefnt er á að þinginu ljúki kl. 16:00, þ.e. eftir að kosningum í framkvæmdastjórn lýkur.