Launahækkanir á almennum vinnumarkaði 1. janúar 2026

Samkvæmt núgildandi kjarasamningi SGS og Samtaka Atvinnulífsins, sem og kjarasamningi LÍV og Samtaka Atvinnulífsins, hækka laun þann 1. janúar 2026. Kauptaxtar hækka þá um 5,25% en 23.750 kr. að lágmarki. Þá hækka kjaratengdir liðir samningsins um 3,5% frá sömu dagsetningu.

Verk Vest hefur gefið út nýja kauptaxta/launatöflur vegna starfa á almennum vinnumarkaði þar sem hægt er að sjá hvernig mismunandi launaliðir hækka út frá launaflokkum og starfsaldri.

Kauptaxtar landverkafólks

Kauptaxtar starfsfólks á veitinga, gistingu, þjónustu og greiðasölustöðum

Kauptaxtar verslunar- og skrifstofusfólks

Kauptaxtar starfsfólks smábátaútgerða

Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal

Þörungaverksmiðjan á Reykhólum

Kauptaxtar starfsfólks á bændabýlum

Kauptaxtar iðnaðarmanna og iðnnema

Laun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum hækka um 3,5% en þó að lágmarki um 23.750 kr. Það þýðir að almenn mánaðarlaun sem eru yfir 678.571 kr. hækka um 3,5%, en laun sem eru undir 678.571 kr., en þó yfir lágmarkstaxta kjarasamnings, hækka um 23.750 kr. á mánuði. Gæta þarf að því að eftir breytinguna séu laun að lágmarki jafngóð og skv. kauptaxta kjarasamnings. Með almennum mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.

Verk Vest hvetur félagsfólk að fylgjast vel með að umsamdar launahækkanir skili sér inn á launareikninga og birtist með réttum hætti á launaseðli janúarmánaðar