1. maí hátíðarhöld 2014
Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.
Union members! Show solidarity and take part in the parade.
Wszyscy bierzemy udział w pochodzie zwiazków zawodowych.
Lagt verður af stað frá skrifstofu Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Á Suðureyri verður lagt af stað frá Brekkukoti kl. 14:00 og gengið að sudlauginni þar sem hátiðarhöldin hefjast með boðsundi.
Dagskráin í Edinborg:
- Ræðumaður dagsins:
Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður.
- Lúðrasveit tónlistarskólans:
Stjórnandi Madis Maekalle.
- Tónlistaratriði:
Bræðurnir Maksymilian Haraldur Frach, Nikodem Júlíus Frach
og Mikolaj Ólafur Frach flytja nokkur lög.
- Pistill dagsins:
Gunnhildur Elíasdóttir formaður Brynju, deildar VerkVest, á Þingeyri.
- Leikatriði:
Lína Langsokkur. Leikdeild Höfrungs á Þingeyri flytur valin atriði úr leikritinu.
- Kaffiveitingar í boði 1. maí nefndar
Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum.
- Kvikmyndasýningar fyrir börn
Ísafjarðarbíó kl. 14:00 og 16:00
Hátíðarhöld 1. maí á Suðureyri.
Kl.14:00 - Kröfuganga frá Brekkukoti.
- Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar.
- Kaffiveitingar í Félagsheimili Súgfirðinga.
- Söngur og hljóðfæraleikur.
- Ræða dagsins.
Allir velkomnir 1. maí nefndin.