Translate to

Fréttir

26. þings Sjómannasambands Íslands

Verkalýðsfélag Vestfirðinga átti 3 fulltrúa á 26. þingi SSÍ sem haldið var dagan 4 - 5. desember í Reykjavík. Umræðan um atvinnu og kjaramál var að vanda fyrirferðamikil og eins hvert skyldi stefna varðandi hugsanlegar aðildarviðræður Íslendinga að ESB. Á þinginu flutti Aðalsteinn Leifsson athyglisverðan fyrirlestur um stöðu Íslands ef kæmi til viðræðna um aðildarumsókn. Má segja að fyrirlestur Aðalsteins hafi svarað mörgum spurningum sem brunnu á þingfulltrúum svo sem hvernig yfirráðum okkar yfir auðlindum verði háttað ef Ísland yrði aðili að ESB. Þá voru öryggis- og tryggingarmál einnig nokkuð fyrirferðarmikil, enda mikið hagsmunamál sjómanna að forvörnum sé þannig háttað að sem minnstar líkur séu á slysum til sjós.  Í lok þings voru samþykktar tvær ályktanir, önnur um kjara- og atvinnumál og hin um öryggis- og tryggingarmál. Þess má geta að Sævar Gestsson fulltrúi Verkalýðsfélags Vestfirðinga var kjörinn til áframhaldandi setu í sambandsstjórn SSÍ fyrir hönd félagsins.
Deila