Translate to

Fréttir

ASÍ og SA ganga frá samkomulagi um vinnustaðaskilríki

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA undirrita samkomulag um vinnustaðaskilríki í Egilshöll í gær, með torkennilegian höfuðbúnað.
Mynd: Vefur ASÍ. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA undirrita samkomulag um vinnustaðaskilríki í Egilshöll í gær, með torkennilegian höfuðbúnað. Mynd: Vefur ASÍ.
 

Í gær undirrituðu fulltrúar ASÍ og SA samkomulag um vinnustaðaskilríki. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. Lögin veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni.

Samkomulagið er mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir því að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Þannig er því m.a. ætlað að hindra félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði.

Samkomulag ASÍ og SA tekur gildi 15. ágúst nk. Byggingastarfsemi, mannvirkjagerð, rekstur gististaða og veitingareksturfellur undir gildissvið samkomulagsins. Síðan er reiknað með að aðrar atvinnugreina fylgi í kjölfarið.

Vinnustaðaskírteinunum er sérstaklega ætlað að auðvelda eftirlit með því að starfsmenn njóti þeirra kjara og réttinda sem þeim ber og koma í veg fyrir ólöglega háttsemi á íslenskum vinnumarkaði.

Atvinnurekandi skal sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.

Atvinnurekandi er ábyrgur fyrir gerð vinnustaðaskírteinisins og þeim upplýsingum sem þar koma fram. Á vinnustaðaskírteini skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

Nafn og kennitala viðkomandi starfsmanns ásamt mynd. Starfsheiti er valkvætt. Ef starfsmaður erlends þjónustufyrirtækis er ekki með íslenska kennitölu skal skrá fæðingardag og ár.

Nafn/heiti atvinnurekanda eins og það er skráð í fyrirtækjaskrá (eða heiti starfsmannaleigu eins og það er skráð hjá Vinnumálastofnun).

Í samkomulaginu kemur einnig fram að samningsaðilar hafa ákveðið að vinna áfram að sérstökum staðli um vinnustaðaskírteini.

Samkvæmt lögunum er eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins heimilt að fara í eftirlitsheimsóknir á vinnustaði atvinnurekanda til að ganga úr skugga um að atvinnurekandi og starfsmenn hans starfi í samræmi við gildandi reglur. Skal eftirlitsfulltrúunum veittur aðgangur að vinnustöðum í þeim tilgangi. Atvinnurekandi og starfsmenn hans skulu bera skírteini á sér og vera reiðubúnir að framvísa því, sé þess óskað af eftirlitsfulltrúa. Með atvinnurekanda er einnig átt við sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Í lögunum er kveðið á um að eftirlitsfulltrúarnir skuli senda upplýsingar þær sem fram koma á vinnustaðaskírteini til skattyfirvalda, Vinnumálastofnunar, Tryggingastofnunar ríkisins, lögreglustjóra og þegar við á, Útlendingastofnunar og Þjóðskrár þannig að unnt sé að kanna hvort atvinnurekandi eða starfsmaður starfi í samræmi við hlutaðeigandi lög sem hverri stofnun er ætlað að annast framkvæmd á. Undirbúningur undir þennan þátt er þegar hafin og er miðað við að nánari útfærsla á samstarfi framangreindra aðila og verklagi liggi fyrir með haustinu.

Af hálfu samningsaðila er lögð áhersla á að fyrstu þrjá mánuði eftir gildistöku samkomulagsins verði hlutverk eftirlitsfulltrúanna einkum að veita atvinnurekendum, sem undir eftirlit falla, upplýsingar um samkomulagið ásamt hvatningu um hrinda því í framkvæmd.

Opnaður hefur verið sérstakur vefur, www.skirteini.is. Á vefnum er að finna upplýsingar um samkomulag ASÍ og SA, lögin og framkvæmdina. Þar er einnig að finna leiðbeiningar um gerð vinnustaðaskírteina.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga væntir góðs samstarfs við fyrirtæki á félagssvæðinu um þetta framfaramál.

Deila