Translate to

Fréttir

ASÍ skoðar málshöfðun á ríkissjóð

Miðstjórnin mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um að ganga enn og aftur gegn fyrirheitum um að lög um þennan sérstaka skatt á lífeyrisréttindi launafólks verði afnumin og að sá skattur sem þegar hefur verið greiddur verði  borgaður til baka. Umrædd skattlagning lendir einungis á lífeyrisréttindum fólks á almennum markaði þar sem ráðherrar, alþingismenn og þeir opinberu starfsmenn, sem aðild eiga að opinberu lífeyrissjóðunum, njóta ábyrgðar ríkis og sveitarfélaga. Af þeirri ástæðu var þetta mikið deilumál milli Alþýðusambandsins og ríkisstjórnarinnar í lok síðasta árs, sem leiddi m.a. til þess að oddvitar stjórnarflokkanna gáfu fyrirheit um að séð yrði til þess að álagning þessa skatts hefði ekki áhrif á réttindi félagsmanna ASÍ. Málið kom einnig upp við endurskoðun kjarasamninga í janúar 2012, en þá lagði ríkisstjórnin fram sérstakt minnisblað um að fyrrgreind lög yrðu afnumin og skatturinn endurgreiddur.  Miðstjórn ASÍ telur með ólíkindum, að þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi í þrígang gefið fyrirheit um afnám þessa skatts á elli- og örorkulífeyri skuli málið enn vera í átakafarvegi.  
Miðstjón ályktaði um málið á fundi sínum í gær og er hægt að nálgast ályktun og greinagerð á heimasíðu ASÍ.

Deila