Translate to

Fréttir

AUGLÝSING UM KOSNINGU TIL STJÓRNAR VERKALÝÐSFÉLAGS VESTFIRÐINGA TIL TVEGGJA ÁRA

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2017 til 2019 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.

Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og tveimur til vara, eða tillögum um einstaklinga í eitthvert, einhver eða öll stjórnarsætin sem kjósa skal til samkvæmt lögum félagsins. Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 25 fullgildra félagsmanna.

A –listi, sem er tillaga trúnaðarráðs, liggur frammi á skrifstofu félagsins og er einnig aðgengilegur á heimasíðu félagsins www.verkvest.is.

Listum eða tillögum ber að skila til formanns kjörstjórnar hjá skrifstofu félagsins Pólgötu 2, Ísafirði eigi síðar en kl. 16:00 þriðjudaginn 16. maí 2017

Ísafirði 2. maí 2017,
Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Deila