Aðalfundur Verk Vest 17. maí
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn miðvikudaginn 17. maí 2017 kl.18.00 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á léttan málsverð í upphafi fundar.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2016
- Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs og skoðunarmanna
- Tillaga um lagabreytingar
- Tillögur um reglugerðabreytingar:
- a) Sjúkrasjóðs
- Kosning framkvæmdastjórnar sjúkrasjóðs
- Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
- Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
- Önnur mál
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að nýta sér þann rétt.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga