Aðalfundur Verk Vest á föstudag
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn föstudaginn 22. maí 2015 kl.17:30 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
 - Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2014
 - Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs, sjúkrasjóðs og skoðunarmanna
 - Tillögur um reglugerðabreytingar:
 - a) Sjúkrasjóðs
 - b) Vinnudeilusjóðs
 - Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
 - Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
 - Önnur mál
 
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt. Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins á Ísafirði í síðasta lagi fimmtudaginn 21. maí 2015.
 
 Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga