Aðalfundur Verk Vest þriðjudaginn 28. maí
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 28. maí kl.18.00 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á málsverð í upphafi fundar.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins
Önnur mál
Ársreikningar félagsins liggja frammi á skrifstofum félagsins á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík.
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga