Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga 18. maí
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 18. maí 2021 kl.18.00 á Hótel Ísafirði.
Vegna samkomutakmarkana eru félagsmenn beðnir að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is. Einnig verður hægt að taka þátt um fjarfundabúnað.
Boðið verður upp á málsverð í upphafi fundar.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins
Önnur mál
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga