Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2014 kl.18:30, á Hótel Ísafirði.
Áður en gengið verður til hefðbundinnar dagskrár aðalfundar verður boðið upp á léttan málsverð.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2013
- Tillögur um lagabreytingar
- Tillögur um reglugerðabreytingar:
- a) Sjúkrasjóðs
- b) Starfs- og siðareglur
- c) Vinnudeilusjóðs
- Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
- Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
- Kosning siðanefndar
- Kynning á skýrslu um svarta atvinnustarfsemi
- Önnur mál
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt. Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins á Ísafirði í síðasta lagi mánudaginn 26. maí 2014.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga