Translate to

Fréttir

Algjör sprenging í umsóknum sumarhúsa Verk Vest

Önundur Jónsson ásamt Eygló og Karitas við útdráttinn Önundur Jónsson ásamt Eygló og Karitas við útdráttinn
Karitas og Eygló á kafi við niðurröðun á tímabilin Karitas og Eygló á kafi við niðurröðun á tímabilin
Það má segja að algjör sprenging hafi orðið í umsóknum sumarhúsa hjá Verk Vest fyrir komandi sumar. á Síðasta ári voru umsóknir 134 en 200 í ár, umsóknir sem bárust eftir lok skilafrestar voru 23 sem koma ekki til úthlutunar fyrr en eftir 5. maí.  Af þessu leiddi að draga þurfti um allnokkrar vikur í sumar, þannig að ekki fengu allir óska vikuna. Útdrátturinn fór fram á skrifstofu félagsins nú í morgun, en til að tryggja að allt færi sem réttast fram sá Önundur Jónsson yfirlögregluþjónn um útdráttinn. Þeir sem hafa fengið úthlutað eru minntir á að ganga frá greiðslu á bústöðum fyrir 5. maí næst komandi eða hafa samband um greiðslufyrirkomulag fyrir þann tíma. Verði það ekki gert verður öðrum félagsmönnum úthlutað viðkomandi tímabil. Ákveðið hefur verið að hafa þann háttinn á að þeir sem fengu úthlutað fá sent bréf sem staðfestir úthlutunardaga. 

Þá er einnig rétt að minna á ýmis önnur gistiúrræði eins og gistimiða hjá Hótel Eddu og hjá Fosshótelum sem er hægt að kaupa hjá félaginu. Félagið hefur líka gert samning við Bílaleigu Akureyrar og Bílaleigu Hertz um afsláttarkjör fyrir félagsmenn á bílaleigubílum. Félagið mun einnig bjóða upp á útileigukortið og geta félagsmenn komið við á skrifstofunni til að kaupa kortið. Minnum á að allar uppplýsingar um orlofsferðir félagsins í sumar má finna í félagsblaði Verk Vest, þar eru einnig upplýsingar um gististaði hótel Eddu og Fosshótela.
Deila