Allir í leik, allir í leik.... Fjölskylduhátíð VerkVest á laugardag!
Í ár fer hátíðin fram á tveimur stöðum samtímis, á Patreksfirði og í
Súðavík. Hátíðin verður á morgun
laugardag, 22. júní, og hefst dagskráin kl. 15 og stendur til kl. 17. Boðið verður uppá grillaðar
pylsur og gos og farið í leiki.
Undanfarin ár hefur Verkalýðsfélag Vestfirðinga staðið
fyrir fjölskylduhátíð.
Á Patreksfirði verður hátíðin á Vatneyrarvelli og ætla félagar í Björgunarsveitinni Blakki að sjá um að grilla pylsur ofan í liðið og stjórna hópleikjum fyrir börnin og hina fullorðnu.
Í Súðavík verður hátíðin haldin í Raggagarði með svipuðu sniði. Grillaðar verða pylsur og farið í leiki.
Félagar í VerkVest eru hvattir til að fjölmenna með fjölskyldum sínum og hafa það gaman saman.