Translate to

Fréttir

Ársfundur ASÍ: Gylfi Arnbjörnsson nýr forseti ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson Gylfi Arnbjörnsson

Niðurstaða í kosningum til forseta Alþýðusambands Íslands liggur nú fyrir.
Gylfi Arnbjörnsson hlaut 166 atkvæði eða 60% atkvæða og er því réttkjörinn forseti ASÍ til næstu tveggja ára. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir hlaut 114 atkvæði eða 40%. Sex skiluðu auðu. Nýr forseti Alþýðusambands Íslands var hylltur af ársfundarfulltrúum þegar niðurstaðan var kynnt núna á tólfta tímanum. Gylfi tekur við forsetaembættinu af Grétari Þorsteinssyni sem lætur nú af því starfi eftir 12 ára farsæla setu á forsetastóli.

Tekið af vef ASÍ.

Deila