Translate to

Fréttir

Atkvæðagreiðsla vegna ríkissamnings

Nú fer hver að verða síðastur að ganga frá atkvæðagreiðslu vegna ríkissamningana sem voru undirritaðir þann 25. maí síðastliðinn. Atkvæði þurfa að berast kjörstjórn SGS fyrir kl 12:00 á morgun föstudag 20. júní. Þeir sem hafa fengið atkvæðaseðla en ekki gengið frá þeim í póst eða á skrifstofu félagsins á Ísafirði eru beðnir að gera það sem fyrst þannig að tryggt verði atkvæði berist kjörstjórn SGS í tíma. Fyrirhugað er að tilkynna úrslit í atkvæðagreiðslunni seinni part sama dags.
Deila