Translate to

Fréttir

Auglýst eftir framboðum til stjórnar og trúnaðarráðs Verk Vest

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2023 til 2025 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.

Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og tveimur til vara, eða tillögum um einstaklinga í eitthvert, einhver eða öll stjórnarsætin sem kjósa skal til samkvæmt lögum félagsins. Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 25 fullgildra félagsmanna.

A –listi, sem er tillaga trúnaðarráðs, liggur frammi á skrifstofu félagsins og er einnig aðgengilegur á heimasíðu félagsins www.verkvest.is.

Listum eða tillögum ber að skila til formanns kjörstjórnar hjá skrifstofu félagsins Hafnarstræti 9 (3hæð), Ísafirði eigi síðar en kl. 12:00 miðvikudaginn 1. febrúar 2023

Ísafirði 18. janúar 2023,
Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Deila