Translate to

Fréttir

Aukin verkefni hjá ráðgjafa VIRK á Vestfjörðum

Fanney Pálsdóttir er ráðgjafi VIRK á Vestfjörðum Fanney Pálsdóttir er ráðgjafi VIRK á Vestfjörðum
Vegna mikillar aukningar á verkefnum ráðgjafa VIRK á Vestfjörðum, sem Fanney Pálsdóttir sinnir, var ákveðið að auka starfshlutfall þannig að viðvera ráðgjafa er eftirleiðis frá kl.08:00 - 14:00 alla virka daga. Starfsemi VIRK hefur verið að skila umtalsverðum árangri til skjólstæðinga stéttarfélaganna á Vestfjörðum eins og dæmin sanna. En meiginverkefni VIRK er að skipuleggja og hafa umsjón með störfum ráðgjafa sem starfa aðallega á vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og munu aðstoða einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda. Hægt er að nálgast reynslusögur og aðrar upplýsingar á heimasíðu VIRK.
Deila