Translate to

Fréttir

Bættu um betur – raunfærnimat

Kynningarfundur hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði, fimmtudaginn 12. febrúar 2009, kl. 20.

IÐAN - fræðslusetur hefur hrundið af stað verkefni sem miðar að því að aðstoða fólk á norðanverðum Vestfjörðum, sem starfar við iðngreinar án fagréttinda, að ljúka sveinsprófi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Menntaskólann á Ísafirði og Fræðslumiðstöð Vestfjarða og gengur undir vinnuheitinu Bættu um betur. Hluti af verkefninu er að gefa fólki kost á að gangast undir svokallað raunfærnimat, þar sem það fær færni sína og kunnáttu metna uppí fagáfanga í iðnnámi. Að auki fær fólk fyrra nám metið, samkvæmt almennum reglum þar um, en þarf svo að ljúka því námi sem uppá vantar. Að því loknu getur viðkomandi gengist undir sveinspróf.

Raunfærnimat er tilraunverkefni sem menntamálaráðuneytið fól Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að útfæra. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins samdi við IÐUNA - fræðslusetur og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins um að framkvæma raunfærnimatið, hvort á sínu sviði.

Samsvarandi samstarf verður tekið upp við Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins um raunfærnimat í rafiðngreinum.

Verkefnið Bættu um betur felst í því að búa til leiðir til að meta færni þátttakenda, stöðu þeirra og gefa þeim kost á að ljúka námi sínu. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám fari ekki eingöngu fram innan formlega skólakerfisins heldur í alls konar aðstæðum en að allt nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað. Tilgangur raunfærnimats er að draga fram og meta fjölbreytilega raunfærni sem einstaklingurinn býr yfir.

Margir einstaklingar á vinnumarkaði hafa í gegnum áralanga reynslu byggt upp umtalsverða færni í ákveðinni iðngrein, en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi.

Kynningarfundur um raunfærnimatið verður haldinn hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, að Suðurgötu 12 á Ísafirði, fimmtudaginn 12. febrúar 2009, kl. 20.

Deila