Betri vinnubrögð – aukinn ávinningur - Samkomulag í höfn!
Heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda á almennum og opinberum vinnumarkaði skrifuðu í dag undir samkomulag um breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Markmið samkomulagsins er að tryggja varanlega aukningu kaupmáttar á Íslandi á grundvelli lágrar verðbólgu, stöðugs gengis krónunnar og lægri vaxta. Með samkomulaginu er lagður grunnur að sátt á vinnumarkaði, auknu samstarfi og minni átökum. Ennfremur er stefnt að auknum efnahagslegum og félagslegum stöðugleika í landinu.
Samkomulagið er afrakstur af vinnu svokallaðs SALEK-hóps, þar sem eiga sæti helstu viðsemjendur á almennum og opinberum vinnumarkaði. Undir forystu ríkissáttasemjara hefur hópurinn unnið að því undanfarin þrjú ár að innleiða bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga á Íslandi til að tryggja atvinnulífinu stöðugleika og launafólki auknum ávinningi að norrænni fyrirmynd. Ástæður þess að aðilar eru sammála um að breytinga sé þörf eru m.a. eftirfarandi.
- Þrátt fyrir næstum tvöfalt meiri launahækkanir á Íslandi hefur kaupmáttur aukist helmingi minna en á hinum Norðurlöndunum á síðustu 15 árum. Uppsafnað munar þetta ríflega 14% í hreinum kaupmætti á þessum árum.
- Verðbólga á Íslandi hefur verið þrefalt meiri en á hinum Norðurlöndunum síðustu 15 árin.
- Frá aldamótum hefur gengi krónunnar fallið um 50% en gengi mynta hinna Norðurlandanna haldist nánast óbreytt gagnvart evru.
- Vegna mikillar verðbólgu og efnahagslegs óstöðugleika á Íslandi hafa vextir að jafnaði verið þrefalt hærri en á hinum Norðurlöndunum.
Nýtt samningalíkan gerir ráð fyrir eftirfarandi:
- Svigrúm til launabreytinga verður skilgreint út frá samkeppnisstöðu gagnvart helstu viðskiptalöndum.
- Fyrirtæki sem framleiða vöru og þjónustu til útflutnings eða í samkeppni við innflutning móta svigrúm til launabreytinga.
- Jöfnun lífeyrisréttinda á almennum og opinberum vinnumarkaði
- Opinberum starfsmönnum verður tryggð hlutdeild í launaskriði á almennum vinnumarkaði
- Kjarasamningar miða að því að auka kaupmátt á grundvelli stöðugs gengis.
Aðilar samkomulagsins skuldbinda sig til þess að ljúka gerð kjarasamninga til ársloka 2018 en að þeim tíma loknum verði nýtt vinnumarkaðslíkan tekið í notkun.