Translate to

Fréttir

Bíldudalssókn færðar góðar gjafir

Hannes Friðriksson formaður Bíldudalssóknar þakkar góðar gjafir Hannes Friðriksson formaður Bíldudalssóknar þakkar góðar gjafir
Stjónin að störfum Stjónin að störfum
Kaffistopp í orlofsbyggðinni í Flókalundi Kaffistopp í orlofsbyggðinni í Flókalundi
Stjórn Verk Vest ásamt Bíldudalssókn fyrir utan Gamla skóla Stjórn Verk Vest ásamt Bíldudalssókn fyrir utan Gamla skóla
Formaður sóknarnefndar  tekur við gjöfum Verk Vest Formaður sóknarnefndar tekur við gjöfum Verk Vest
Gjafaafsalið undirritað Gjafaafsalið undirritað

 

Á stjórnarfundi Verk Vest sem var haldinn laugardaginn 16. maí í Gamla skóla á Bíldudal voru Bíldudalssókn færðar góðar gjafir. En á stjórnarfundi þann 1. apríl sl. var samþykkt að eignarhlutur Verk Vest í Gamla skóla yrði færður Bíldudalssókn að gjöf. Með gjöfinni fylgdi allt innbú í eigu félagsins og aðrir þeir munir í eigu félagsins sem hafa sögulegt gildi fyrir Bíldudal. Þá var sóknarnefnd einnig færð peningagjöf til viðhalds á húsinu.  Formaður sóknarnefndar ásamt sóknarpresti Bíldælinga færðu félaginu góðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf og vonaðist til áframhaldandi góðs samstarfs við félagið í framtíðinni.

Á fundinum samþykkti stjórn félagsins að taka undir ályktun málþings um sókn í eflingu atvinnulífs á suðursvæði Vestfjarða frá 5. maí sl. Í framhaldi af umræðum um atvinnu- og samgöngumál í fjórðungnum var einnig samþykkt að senda út eftirfarandi ályktun.


"Stjórnarfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn á Bíldudal 16. maí 2009 tekur undir ályktun málþings "Sókn í eflingu atvinnulífs á suðursvæði Vestfjarða" frá 5. maí sl.  Engin sanngirni felst í því að þau landssvæði sem tóku á sig mikinn skell vegna ofþenslu síðustu ára þurfi að taka á sig enn frekari skell vegna þeirrar kreppu sem nú dynur á heimilum landsmanna. Fundurinn beinir þeim tilmælum til Alþingis að horfa sérstaklega til þeirra sóknarfæra sem felast í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni bæði í sjávarútvegi og landbúnaði.

 

Fundurinn krefst þess að stjórnvöld geri stórátak í jöfnun raforku- og flutningskostnaðar sem og standa við fyrri hugmyndir um flutning opinberra starfa til landsbyggðarinnar.  Þá verði átak í samgöngumálum Vestfirðinga sett í algjöran forgang, þannig að heilsárstenging suður- og norðursvæðis verði að veruleika sem fyrst.  Í þeim málum eru vestfirskir vegir mörgum áratugum á eftir í uppbyggingu og þróun. Sú tenging mun skjóta styrkari stoðum og efla samvinnu og samstarf í atvinnumálum á norður- og suðursvæði Vestfjarða."

Deila